23.12.2008 | 12:49
Gleðileg jól
Óska öllum bloggvinum mínum og fjölskyldum ykkar og öðrum gleðilegra jóla og árs og friða
Og hafið hjartans þökk fyrir árið sem er að líða og góðrar bloggvináttu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.12.2008 | 19:49
Helgin mín
Helgin mín var of fljót að líða ,vantaði fleiri mínútur í klukkutímann,þessa helgi
En við áttum góðan tíma saman bara allt of stuttan
Það var mætt á flugvöllinn kl 1.30 og þau sótt
Síðan var haldið í kringluna ,hittum þar Sússu og Berglindi
Og við fengum okkur í svanginn,var voðalega svöng
Svo var Gummi svo þreyttur kom beint af næturvakt
Og kl 3.30 var lagt á stað suður Gummi var ekki upplagður að versla sem er skiljanlegt hann var búin að vaka í 24 tíma
Þetta var föstudagurinn
Laugardagur
Aftur farið í hana Reykjavík að versla auðvitað
Og við vorum bara svo á rölti í verslunum
Svo fór ég og Berglind að kaupa jólagjöf fyrir Sússu frá Berglindi og Ástþóri
Segi ekki hvað var keypt en ég held hún verði ánægð
Og svo var keyrt suður og farið í mat til Lalla og Mariu
Og um kvöldið var pakkað inn jólagjöfunum
Og svo var horft á Laddi sextugur og mikið var hlegið
Og svo farið að sofa kl 3 allt of seint
Sunnudagur
Við ásdís fórum í bónus að versla smá
Og svo fóru Ásdís og Gummi að heimsækja Kalla og Kollu og Sússu og co
Geira´og Aseneth og Maríönu og Maríana tók miklu ástfóstri við Ásdísi
Það var gaman að sjá
Svo var haldið til Reykjavíkur aftur og þau fóru í flug Austur aftur ,þetta var of stutt stopp
En þau reyna að koma aftur í Janúar
Ég vaknaði við jarðskjálfta kl 4 í nótt
Það var fröken vala að vekja mig ,og þegar ég reisti mig upp þá lagðist hún bara niður
En svo fór ég að hugsa mig var að dreyma ,skil þetta ekki alveg af hverju vakti hún mig veit ekki kannski lét ég svona illa
Svo er ég búin að vera að segja að ég eigi loðna inniskó hún vala liggur ofaná fótum mínum og hún eltir mig um allt
Ég held að henni líki vel við mig
En Lilla neitaði að borða hún var svo abbó
En 'A föstudaginn var ég að hlusta á frétti í útvarpinu
Og þar var viðtal við konu sem keypti sér hús eins og fleiri
Og hún sagði ég vil fá svar og vil ég líka svar
Mín spurning er hvað á að gera þegar launin duga ekki til að borga af húsi og bíl og tryggingar og allt annað sem því fylgir að lifa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.12.2008 | 10:55
Langþráður Föstudagur
Snúllan fékk annað nafn vala ,það kom óvænt.
Hún vældi mikið fyrsta daginn og nóttina þá spangólaði hún sko , en í nótt
Heyrðist ekki neitt í henni
Bara algjör engill .
En nú er góður föstudagur runnin upp ,er að fara til Reykjavíkur að ná í prinsessuna mín að austan
Þau koma fljúgandi .Ásdís Gummi og Lilla ,hlakka svo til að knúsa þau .
En þau fljúga austur aftur á Sunnudagskvöld
En svo fer ég austur til þeirra 28 des
Við ætlum að skoða Reykjavíkina í dag
Ekki meira í bili nema mér sló smá niður aftur var óþekk
Munið að kvitta
Knús á ykkur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
17.12.2008 | 22:02
Snúllan mín
Hér er mynd af Snúlluni minni og búin að tína hinum myndunumEn það komu margar myndir eins ,ég kann ekkert á þetta
En Snúllan mín er æðisleg núna sefur hún hér við hlið mér voða góð ,bara pínu tíst á leið heim en hún er yndisleg.En mig vantar búr undir hana ,hvar fær maður ódýrt búr í dag .
En sem betur fer er flensan að lagast hjá mér ,var með verkjatöflur og
,hóstasft og te
og það mýkti sko mikið hálsinn en enþá smá sár í hálsinum .Barnið er að vakna ætla að láta hana út hehe
Og munið að kvitta
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
15.12.2008 | 14:16
Helginn mín
Jæja gott fólk hér er ég komin aftur .Helginn mín var rosalega góð .Mikið að gera samt ,föstudagurinn var góður var að snúast í hinum og þessum málum var líka með smá í maganum .Konni minn kom til mín hann vildi ekki fara með foreldrum sínum bara vera hjá mér .
Laugardagurinn Fór ég og Konni Geiri Aseneth og Mariana í hana Reykjavík .Og við fengum þessa ramma sem okkur vantaði fengum fína ramma fyrir lítinn pening
Og svo er það heimferðin við höfum aldrei hlegið eins mikið ,Geiri og Konni voru að pexa um liverpool og manchester hverjir eru bestir og hver cökkar ,Konni minn var orðin svo ruglaður ,og hann var farin að kalla Asenet Arsenal og hann ætlaði að láta sér dreima kærustu í liverpool náttfötum ,þessi elska var alveg komin í marga hringi .Þetta var rosalega góður dagur ,en lið Konna er manchester ekki liverpool ,en liverpool var orðið bestaliðið og liðið sem sökkaði var manchester .Og svo var Konni minn búin að fá nóg ,en við höfðum mikið gaman .
Sunnudagurinn fórum í kirkjugarðinn og settum ljós á leiðið og það er rosalega fínt og svo ætla ég í dag svona um 5 leitið að kveikja á kerti
Og kvöldið var svo rólegt ,en Dóra mín ég er farin að sakna sófusar er ekki límd við hann enþá en lofa að límast við hann bráðlega
Og Ladývally eg er ekki sofandi
Og restin er að ég fékk gefins 8 vikna hvolp kann ekki að skrifa borderkolly og lassýkolly
Og það er tík en mig vatar nafn á hana hún er ljósbrún með smá svörtu kann ekki að lísa litnum
Munið að skilja eftir spor hér
Og líka nafn .Mig vantaði eitthvað til að knúsa
Ekki má gleyma hittum Sússu og Berglindi ,og svo Berglindi frænku í smáralind á laugardag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
12.12.2008 | 14:06
Bara að láta vita af mér
Mér líður vel en er svolítið þreytt er með plástur á öllum puttum,erum að pakka inn einhverju glingri .Og það er gott að komast út á meðal fólks
Ég ætla í Reykjavíkina eftir hádegi á morgun
En á Miðvikudagskvöld fengum við Stína og Sveina dekur hjá dúllunum okkar
Svo við erum gasalega fínar núna og lendum ekki í jólakettinum
En í dag er ég bara að slaka á heimavið í Sóf þið vitið
En munið að skilja eftir ykkur spor þið sem kíkið hér við
Og takk fyrir komuna
En nú vitið þið að ég er búin að hafa nóg að gera
Og svo bíð ég núna sent eftir að knúsa Dísu mína og co
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
6.12.2008 | 21:38
Faðmur sófusar
Nú er ég bara í letistuði og það er gott að vera í faðmi sófusar Hann er svo mjúkur
En ég hef lítið gert í dag ekki mikið að segja frá
Hef þetta svona í litlu núna
Munið að skilja eftir fingraför hér
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
5.12.2008 | 17:47
Samúðarblogg
Varð mikið sleginn að heyra þá frétt að Rúnar Júlíusson hafi kvatt þennan heim Þetta var góður drengur .María mín votta þér og fjölskyldu þinni mína dýpstu samúð
Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiða tíma
Sendi þér stórt knús og faðmlag
Kveðja Óla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.12.2008 | 13:24
Bloggið mitt
Jæja nú er ég komin ,er búin að vera í smá lægð,en er komin aftur sterkari .Búin að hugsa og hugsa og bara komið gott út úr því .Ég ætla að berjast í því að láta mér líða betur .Held að maður verði að fara langt niður til að sjá ljósið ..Og í ofanálag fékk ég flensu og magakveisu og svaf í náttfötum þykkum og flís phonsjo og ,kanínuullarsokkum,mér var svo kalt .Svo var ég að tína upp úr kössum sem ég var ekki búin að koma mér í að gera ,en nú er það búið
Svo erum ég og unga konan í hinum bænum að fara á djamm í kvöld og frúin líka .Og svo erum við unga að fara í sundleikfimina kl 5 ef hún minnir mig á það .
Svo ætla ég í Reykjavíkina á laugardag með Geira Aseneth og prinsessunni ná mér í myndaramma og einhverja smá hluti á ekki fyrir stórum hlutum vantar nýtt rúm en það verður að bíða betri tíma
Þú unga kona í hinni víkinni hér er sól og blíða og 30/prósent sól og hiti og ég sé til Reykjavíkur út um eldhúsgluggann minn ,og við sjáumst fyrir kl 5 ef ég man
Munið að skilja eftir fingraför allir sem einn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.12.2008 | 00:45
Jæja hvað
Það er ekki lokað hjá mér .Bara mikið að gera við að hugsa eins og aldrei áður
En nú er ég að laga aðeins til og opna kassa og tína úr þeim
Og svo að tína í þá aftur öðru dóti
Og svo eru Stína og Birna að skreyta ljósakrossinn með greni og englum og slaufu
Svo ætlar Eysteinn að útbúa statív svo ég þurfi ekki að binda hann við hinn krossinn
En svo var síðasti skóladagur í dag en við ætlum að reyna að fá meira eftir áramót
En ekki meira í bili knús á ykkur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar