Færsluflokkur: Bloggar
13.11.2010 | 10:13
Flutningur austur.
Jæja þá er ég flutt austur á Neskaupstað
Er að koma mér fyrir og það gengur bara vel
Og mér líður vel ennþá allavega ,enda ætla ég mér það ,ákvað að vera í 1 ár ,sé svo til
Komin með sjónvarp og tölvuna ,þá er ég sátt
Ekki meira í bili ,
Það kingir niður snjó hér ,orðið svo jólalegt ,og ég er með rauða lampa í stofunni og eldhúsinu ,og bláan í herberginu ,vantar lampa í litla herbergið ,ég redda því í rólegheitum
Mig vatar líka rúm og sófa og sófaborð ,og þetta kemur í rólegheitunum ,og þegar ég verð rík
Kveð í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.10.2010 | 11:24
Umboðsmaður skuldara.
Það var hringt í mig frá umboðsmanni skuldara ,þeir vilja gera eitthvað fyrir mig ,en hvað ,mér finnst ég vera dreginn á asnaeyrunum ,jú sko reyna að gera eitthvað td greiðsluaðlögun ,ég verð að láta bílinn ,en þarf samt að borga af honum ,??? hva af hverju má ég þá ekki halda honum ,fyrst ég þarf að borga af honum ,ég er ekki í þessari stöðu vegna óráðsíu ,reyki ekki drekk ekki ,af hverju vita þau ekki hvort ég komist í greiðsluaðlögun ,líður manni ekki nógu illa fyrir ,maður er dreginn á asnaeyrunum,og af hverju eru ekki fleirri í greiðsluaðlögun ,en hvað er greiðsluaðlögun hvað þíðir það ,ég átti ekki fyrir klippingu hvað þá mat eða lyfjum ,sko lyfin ég tók hálfa töflu ,til að láta lyfjaskamtinn duga lengur ,en ég hætti að borga í júní og skuldinn hækkað þess vegna ,en nú get ég farið í klippingu og borðað,og tekið lyfin eins og ég á að gera ,en ég er búin að vera svo lengi ég verð að berjast við sjálfa mig,stundum vil ég berjast,en svo er engin áhugi til að berjast ,en nú er bara reiðin eftir ,og það er erfitt að losna við hana ,en mér finnst mikið atriði að vita strax hvort maður kemst í greiðsluaðlögun,ekki bíða í 3 mánuði eftir svari ,eins og frá íbúðalánasjóði ,fékk höfnun á frystingu ,á þeim forsendum að ég hefði ekki greiðslugetu á úræðatíma eða eftir ,öll þessi bið brýtur mann bara niður
En nú er ég kominn austur á land í dekur hjá dóttur minni tengdasyni og barnabarni ,það er gott að fá umhverfisbreytingu ,hann er svo yndislegur sá stutti er að byrja að labba með framm ,en gleymir sér stundum og sleppir ,og plammar svo niður og hann hlær bara ,svo ánægður með lífið ,og svo er hann að byrja að tala mamma pabbi ,o jæja, allt bú ,og halló,og dudda ,svo togar hann í lillu ,og lilla urrar stundum ef hann er mikið harðhentur ,svo hlær hann bara að því
En mér líður vel hér ,hér er dextrað við mig ,og ég við þau ,og við Ásdís erum hér með handavinnu ,voða kósí hjá okkur,ég sauma hún prjónar ,svo ætla ég að prjóna sokka á littla kút ,held að við séum að vinna í jólagjöfum ,en nú veit ég ekki hvað ég á að segja meira ,en það er búið að vera mikil þoka hér hjá okkur en sólin er að gæjast út úr skýjunum
En bless í bili ,kveðja Óla
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.5.2010 | 14:20
Vand lifað
Það veit guð mig langar ekki að missa íbúðina mína
Keypti á 13.6 borgaði út 2.8
Skulda í dag 14.5 ,hvað er hægt að gera ,ég er alveg ráðalaus
Er eitthvað hægt að gera í þessari stöðu ,ætlaði að láta íbúðina bara fara á uppboð,en langar að halda henni ,ég tók ekki lán fyrir hjólhýsi eða tjaldhýsi ,keypti ekki dýra íbúð ,ekki jeppa, ég elska bílinn sem( avant ) á ég borga af honum ? .Stundum langar mig að gefast upp ,svo kemur tími sem ég vil berjast
Ég er ekki verst stödd veit það ,en er illa stödd
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.4.2010 | 00:53
Er bara góð
Er bara í góðum fíling ,hér er bara gott að frétta ,prinsinn minn dafnar bara mikið vel .
Prinsinn er duglegur að borð og gubba hehehe .
Ég er hressari þessa dagana
Var í austfjarðar þoku um páskana ,það var samt gott veður sól og blíða .
Hver veit nema maður pakki saman og flytji austur .
Það er alldrey að vita
Og ég er enn með rugluna
Kveð í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2010 | 15:59
Kaffið
Fór í kaffi til Vallýar ,fékk kaffi og ristað brauð
Ekki rautt epli ekki grænt heldur
Vorum bara eitthavað að ruglast í hvor annari
Takk fyrir kaffið og meðlætið Vallý mín alltaf gott að koma til þín
Hlakka til að fá Ásdísi og litla kút suður get varla beðið
Bæbæ að sinni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.12.2009 | 15:27
Jólaprinsinn minn.
Jæja þá er hann komin heim í ömmukot
Hann er yndislegur
Þau er smeik við heimsóknir ,því þau voru rúman mánuð með hann á lansanum
Hann veit hvað hann vill
Hann er svo líkur í báðar fjölskyldurnar
Maður getur bara setið og horft á þessa yndislegu veru
En það er gott að hann er komin heim ,nú er bara að fara að lifa eðlilegu lífi
Það verður fljótt að koma
Og blóðþristingur Dísu lækkar núna því stressið er að hverfa ,bara smá eftir
En ekki meira í bili
Eigið góða viku
Munið að kvitta þið sem lesið ,
Ég ætla að reyna að skrifa hér aftur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.11.2009 | 02:05
Jóla hvað
Jæja er byrjuð að jólast ,búin að þvo alla glugga og setja upp jólaljós ,það er svo kósí eitthvað,og léttir lund mína .En nú fer að líða að því að litli prinsinn komi heim ,hann kemur heim um leið og hann er búin að fatta hvað hann á að gera við brjóstið hennar mömmu sinnar .Ég er orðin svo spennt að sjá hann ,sko hann er fæddur 1 nóvember ,svo það er tími að hann komi heim ,hann er að ná sér svo vel .
Ekki meira í bili .
munið að skilja eftir fingraför knúsý knús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2009 | 15:40
Nýtt barnabarn
Fæðingin gekk vel ,en það gengur ekki vel með barnið ,það finnst ekkert hvað er að ,en ungu foreldrarnir eru
svo dugleg og sterk
Það er búið að finnast slím í lungum
Og einhver blóðvökvi í maga
svo var hann komin með bjúg
Vona svo innileg að það fari að finnast hvað er að
Þetta er ótrúlega stressandi ástand
Okkur langar svo að vefja hann örmum en megum það ekki ,
ekki einu sinni skoða hann .
Viljið þið senda okkur góða strauma
Takk fyrir innlitið
Kveðja Óla og Lilla
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.10.2009 | 23:10
Smá blogg
Hún Dísa mín er komin suður í mömmukot ,þau verða hjá mér fram að áramótum .
Hún er skráð 3 nóvember.
Hún þarf að eiga á lansanum.
Þar sem krílið litla þarf að fara í gifs í 6 til 10 vikur skipt einu sinni í viku
Dísan mín er líka að berjast við of háan blóðþrýsting
En annars gengur þetta bara vel
Barnið dafnar vel ,og það er vel fylgst með þeim
Takk fyrir innlitið ,kveðja Óla og co
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.10.2009 | 18:13
Smá smá
Er bara að fikra mig áfram vita hvort ég kunni þetta.
Mér líður vel og er sátt .
Kveðja í bili ,kem aftur bæ bæ
Það er slökun í kvöld
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar