10.3.2009 | 09:53
Áríðandi spurning
Það er verið að taka fjölbýlið sem ég bý í í gegn
Ég bað um tilboð í glugga og gler hjá mér
Tilboðið er komið og það er búið að samþykkja það
En ég hef ekki séð þetta tilboð
Og það er byrjað að vinna við þetta
Hver á að borga ég eða sá sem samþykkti
Ég stoppaði framkvæmd
Er það ekki rétt hjá mér að ég hafi átt að fá tilboðið
Mér skilst að formaður sé með tilboðið og hafi samþykkt það
Er ekki einhver sem getur frætt mig um þetta
Kveðja Óla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Leiðinlegt að heyra Óla mín, ég er nú ekki vel að mér í þessu. En kannski er ágætt fyrir þig að hafa samband við Húseigendafélagið til að fá nánari upplýsingar, þeir eru líka með sína eigin vefsíðu. Eftirfarandi getur kannski hjálpað þér eitthvað vona ég: http://www.huseigendafelagid.is/index.php?id=10,0,0,1,0,0 Þarn er fjallað um sameiginlegar ákvarðanir sem verður að taka á húsfundum. Gangi þér vel og knús
Auður Proppé, 10.3.2009 kl. 10:37
Elsku Ólöf mín.
Leiðinlegt að heyra þetta með húsfélagið. Mjög leiðinlegt að heyra. Hvernig er það, getur þú ekki haft samband við húseigandafélagið eða ??? einhver samtök sem geta hjálpað þér í þessum málum. Nú ef í hart fer að þá verður þú náttúrulega bara að útvega þér lögfræðing. Hmmm... Þetta er leiðnlegt mál hjá þér Ólöf mín. Ég vildi að ég gæti hjálpað þér eitthvað með þetta, en það get ég því miður ekki.
Gangi þér rosalega vel Ólöf mín og ég verð með hugann hjá þér.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 14:44
Þetta er allt að koma, komin með góðar upplýsingar.
Ólöf Karlsdóttir, 10.3.2009 kl. 15:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.